
Hafragrautur með döðlum & valhnetum
Morgunmatur
Lífrænt · Glútenlaust · Instant
Ferskur, næringarríkur og tilbúinn á svipstundu. Lífrænn og glútenlaus instant hafragrautur með sætum döðlum og stökkum valhnetum.
Gefðu líkamanum þá orku sem hann á skilið, jafnvel á erilsömustu morgnum! Kaja instant hafragrautur með döðlum og valhnetum færir þér klassíska og hlýja bragðsamsetningu sem seður og nærir. Við notum vottaða glútenlausa hafra sem verða dásamlega kremaðir á örfáum mínútum. Við blöndum þeim við náttúrulega sætar döðlur og ristaðar valhnetur sem gefa grautnum dásamlegt bit. Hreinn, trefjaríkur og lífrænn morgunmatur sem fer einstaklega vel í maga og heldur þér gangandi fram að hádegi, jafnt heima, í vinnunni eða á ferðinni!
INNIHALD
Hafraflögur* (glútenlausar), sólblómafræ*, döðlubitar* (18%) (döðlur*, hýðisgrjónamjöl*), valhnetur* (12%), sjávarsalt. (* vottað lífrænt)
FÆST Í
