Leiðbeiningar og nánari upplýsingar
Tilgangur hreinsunarinnar er að hvíla líffærin, núllstilla sig, losna við bjúg og bólgur, gefa líkamanum gaum og huga að breyttum lífsstíl ef þess er þörf.
Safahreinsun er 5–9 daga prógramm: tveir dagar í undirbúning, fimm dagar þar sem einungis eru drukknir lífrænir safar og tveir dagar til að taka fæðu aftur inn.
Innifalið í verði eru fimm safakassar með fimm söfum hver, alls 25 mismunandi safar. Fyrri hlutinn samanstendur af söfum úr hreinsandi ávöxtum og grænmeti, seinni hlutinn af uppbyggjandi hráefnum. Allir safarnir innihalda trefjar, sem hjálpa til við að sópa út óhreinindum og halda blóðsykri stöðugri.
Við gerum safana daginn áður en þeirra er neytt og setjum þá á glerflöskur svo gæðin haldist sem best.
Fyrir þá sem mega ekki við að léttast eða eru í erfiðisvinnu mælum við með að bæta lífrænu jurtapróteini inn í hreinsunina. Betra er að taka það inn en að gefast upp. Ef hungrið sækir að er gott að fá sér lífrænt vottað epli.
Undirbúningur
Hugurinn. Settu þér markmið og skoðaðu hvar þú ert stödd/staddur. Er mataræðið til fyrirmyndar? Ef ekki, hvað ætlarðu að gera þegar hreinsuninni lýkur?
Næring dagana fyrir safana. Taktu eftirfarandi út úr mataræðinu til að létta á meltingunni:
-
Kjöt og fisk
-
Mjöl og glúten
-
Sykur
-
Fæðubótarefni og vítamín, allt nema góðgerla
-
Mjólkurvörur
Borðaðu aðeins hreina, lífrænt vottaða fæðu. Í lífrænni ræktun eru ekki notuð eiturefni og lífræn vottun leyfir ekki ónáttúruleg E-efni. Góðgerla er gott að taka allan tímann, sérstaklega fyrir þau sem eru viðkvæm fyrir sveppasýkingu.
Kaffi. Fyrir þau sem drekka kaffi mælum við með að hámarki einum espressobolla af lífrænu kaffi á dag til að halda fráhvörfum í hófi.
Losun
Fyrstu tveir dagarnir eiga að einkennast af klósettferðum. Ef hægðalosun er lítil eða engin mælum við með Epsom salti (fæst í Mistri) eða magnesíum í meira magni.
Epsom salt: 1–2 tsk út í volgt vatn bæði kvöldin í undirbúningnum, miðað við þyngd. Athugaðu að mikið magn veldur kröftugum niðurgangi.
Aukaverkanir
Algengustu aukaverkanir eru þreyta, verkir og slappleiki. Sumir finna til á stöðum þar sem þeir hafa áður kennt sér meins. Á þriðja til fjórða degi eykst orkan og allt fer á uppleið.
Hjá þeim sem fara í fyrsta sinn getur ferlið tekið lengri tíma og þreyta varað allan tímann. Í undantekningartilfellum finnur fólk enga breytingu.
Lyf og heilsufar
Ráðfærðu þig við lækni ef þú ert á lyfjum. Safahreinsun getur haft áhrif á virkni lyfja.
Krabbameinsmeðferð: Við mælum ekki með hreinsuninni fyrir fólk á krabbameinslyfjum eða í meðferð. Best er að láta eitt ár líða frá meðferð.
Blóðþrýstingslyf: Hreinsunin lækkar í flestum tilfellum blóðþrýsting. Fylgstu vel með honum, oft þarf að minnka skammtinn.
Blóðsykur: Hreinsunin getur haft áhrif á blóðsykur, bæði til lækkunar og hækkunar. Það er mjög einstaklingsbundið.
Önnur lyf geta virkað sterkar þegar fæðið er léttara. Skoðaðu það vel, jafnvel í samráði við lækni.
Árangur
Það sem fólk tekur helst eftir er að sykurlöngun minnkar, liðir verða mýkri og bólgur minnka. Skoðaðu hvítuna í augunum fyrir og eftir, þar sést oft mikill munur.
Til að viðhalda sem bestu líkamlegu ástandi er gott að fara í hreinsun einu sinni til tvisvar á ári. Safahreinsun er ekki megrunarkúr.
Hráefnin
Agúrka, ananas, appelsínur, avókadó, bananar, bláber, chili, engifer, epli, gul paprika, gulrætur, hindber, jarðarber, kíví, límóna, perur, mangó, rauð paprika, rauðrófur, sellerí, sítróna, spergilkál, spínat, sætar kartöflur, tómatar, trönuber og vínber.
SAFAHREINSUN KAJU
Fimm dagar af lífrænum söfum
Tilgangur hreinsunarinnar er að hvíla líffærin, núllstilla sig, losna við bjúg og bólgur og gefa líkamanum gaum.
2 dagar undirbúningur → 5 dagar eingöngu lífrænir safar → 2 dagar fæða tekin aftur inn
25 mismunandi safar á glerflöskum, gerðir ferskir daginn áður.
Næsta hreinsun: janúar 2027
Dagsetningar auglýstar síðar. Skráðu þig hér fyrir neðan og við höfum samband.
Sótt á Akranes: 30.000 kr. · Sótt hjá Pikkoló: 34.000 kr.
Haustið 2026: 7., 14., 21. og 28. september. Lokið.
