
Granóla með súkkulaði & trönuberjum
Morgunmatur
Lífrænt · Vegan · Glútenlaust
Hversdagslegur lúxus í hverri skál. Lífrænt og glútenlaust granóla með dökku súkkulaði og safaríkum trönuberjum.
Leyfðu þér smá dekur strax á morgnana með fullkominni bragðblöndu. Kaja glútenlaust granóla með súkkulaði og trönuberjum sameinar stökka, glútenlausa hafra, ríkt og gæðamikið dökkt súkkulaði og súrsæt, safarík trönuber. Þetta er trefjaríkur og ljúffengur morgunmatur sem fer einstaklega vel í maga og svalar sætuþörfinni á hollan og næringarríkan máta. Fullkomið jafnvægi á milli sætu og ferskleika, algjörlega glútenlaust!
INNIHALD
Hafraflögur* (glútenlausar), bókhveiti*, reyrsykur*, dökkt súkkulaði 58%* (6%) (kakómassi*, reyrsykur*), kakó*, trönuber* (4%) (trönuber*, reyrsykur*, sólblómaolía*), sólblómaolía*, sjávarsalt. (* vottað lífrænt)
FÆST Í
Hagkaup, Nettó, Fjarðarkaup, Melabúðin, Krónan Akranesi
