Já nú gleðjast þeir sem elska að versla í lausu.
- Kaja

- Oct 3, 2025
- 1 min read
Nei við erum ekki að endurvekja gamla Matarbúr Kaju sem starfrækt var á Akranesi með útibú í kjallara á hinni yndislegu Óðinsgötu. Þetta var algjör draumur hjá mörgum að geta komið með ílátin sín og fyllt á þau eða fengið bréfpoka og keypt það magn sem þeim vantaði.

Matvara í lausasölu Matarbúr Kaju Óðinsgötu
En ef við erum ekki að opna hvað er þá svona yndislegt? Jú Heilsuhúsið Kringlunni og Kaja organic eru komin í samstarf. Heilsuhúsið er búið að opna lausavöru "bar" með vörum frá Kaju. Á þessum bar er mikið úrval af því sem heilsugúruar nota í morgunmatinn, hádegismatinn eða bara sem snakk. En fyrst og fremst er einblínt á lífrænt vottað.
Það eru 32 tegunir af allskonar gúmmulaði á lausavörubar Heilsuhússins, fræ, hnetur, korn, baunir og þurrkaðir ávextir. Þrjár tegundir af flögum; hafraflögur glútenlausar, bókhveitiflögur og kínóaflögur svo eitthvað sé nefnt. Þurrkaðir ávextir í allskonar formi, döðlur og döðlubitar, trönuber, rúsínur, gojiber, bananarbitar og eplabitar......jeminn eini þetta verður algjör snilld.
Frábært að koma með krukkuna eða fá bréfpoka á staðnum, kaupa sér slatta af því sem manni finnst best í morgunmatinn og eiga svo í krukku heima í skápnum.
Kringlukast hófst 1. okt og stendur til 6. október, af því tilefni verður Kaja með kynningu á laugardaginn 4. október frá kl 13-15, þar munum við bjóðum upp á gríska jógúrt með granóla músli, múslí sem verður á barnum góða....hlökkum til að sjá ykkur
lífrænar kveðjur
Kaja




Góð karry kókós súpan. Hlakka til að geta keypt músli sem maður getur treyst að sé hollt