top of page

Kaju súpur renna sitt skeið á enda.

  • Writer: Kaja
    Kaja
  • Sep 23, 2025
  • 1 min read

Það má segja að þetta sé hálfgerður fílupóstur því nú sér fyrir endann á allri súpu gerð hjá Kaju.

Ástæðuna má rekja til fáránlegs ósættis á milli UK og EU sem leiðir til þess að lífræna vottunar keðjan slitnar í miðri aðfangakeðjunni. Kókosmjólkin sem við höfum keypt síðastliðin 8 ár flytjum við inn frá Hollandi en uppruna land er frá Sir Lanka og hefur Bretland verið dreifingar aðili innan Evrópu.

Nú er svo komið að breska vottunin og vottun Evrópu sambandsins geta ekk komið sér saman um hvernig vottun geti haldist í aðfangakeðjunni - Sir Lanka > UK > Island eða UK land.

Þegar skriffinskan er farin að þvælast fyrir mannskepnunni þá er voðin vís.

Síðustu kassar fara í verslanir í dag en við krossleggjum fingur að einhver lausn finnist á þessari þvælu og fólk fari að hugsa í lausnum ekki í excel skjölum.

lífrænar? kveðjur

Kaja

 
 
 

Comments


bottom of page